Samfélagsmiðlar: þarf þetta virkilega að vera svona flókið?
- Gudrun Ragnarsdottir

- Aug 10
- 6 min read

Sama hvort þú ert að reka gististað, afþreyingu eða veitingastað nota viðskiptavinir þínir samfélagsmiðla til að fá innblástur. Löngu áður en ferðalagið sjálft hefst.
Ferðamenn skrolla á Instagram og TikTok á kvöldin, yfir morgunbollanum, í lestinni á leiðinni í vinnuna eða jafnvel á klósettinu. Þegar að algrímið sendir þeim myndband með spennandi áfangastað vista þeir efnið hjá sér eða áframsenda það á ferðafélagana.
Samfélagsmiðlar miðla stemningu, umhverfi og upplifun mun betur en aðrir miðlar. Heimasíða getur gefið upplýsingar um herbergjatýpur, brottfarartíma og þjónustu í boði en í gegnum myndir og sögur á samfélagsmiðlum svara ferðamenn spurningunni sem skiptir mestu máli: Er þetta staðurinn fyrir mig?
Samfélagsmiðlar eru því ekki bara hluti af undirbúningi fyrir ferðalagið, þeir eru partur af ferðalaginu sjálfu.
Samfélagsmiðlahausverkurinn
Þú veist að fyrirtækið þitt þarf að vera á samfélagsmiðlum. Þú hefur heyrt það í fyrirlestrum, lesið um það í ótal greinum á internetinu og meira að segja rætt það yfir kaffibolla með samstarfsfélögum í greininni.
Þótt þú vitir fullkomlega hversu mikilvægir samfélagsmiðlarnir eru verður það einhverra hluta vegna óyfirstíganlegt að sinna þeim.
Þér líður eins og þú hafir ekki tíma, að þú kunnir ekki nóg og það hjálpar ekki að það er alltaf eitthvað nýtt að bætast í samfélagsmiðlahrúguna: nýir miðlar, nýjar tegundir efnis, ný trend sem allir virðast þurfa að hoppa á.
Góðu fréttirnar eru að þú ert langt frá því að vera eina manneskjan í þessum sporum. Mörgum ferðaþjónustuaðilum vaxa samfélagsmiðlar í augum og flestir upplifa á einhverjum tímapunkti að þeir séu ekki að gera nóg.
Enn betri fréttir eru að þú þarft ekki háskólagráðu í markaðsfræði til að breyta þessu. Þú þarft bara að muna þetta þrennt:
Að birta efni reglulega skiptir meira máli en fullkomnun.
Viðhald er ekki það sama og sókn
Skipulag er vinur þinn.
Að birta efni reglulega
Þótt það sé vissulega alltaf betra að markaðsefnið þitt sé vandað, að skilaboðin eigi erindi við viðskiptavini og myndefnið höfði til markhópsins, skiptir líka máli að birta efni reglulega.
Ef þú eyðir öllu markaðsfénu þínu í frábæra auglýsingu en átt engan pening eftir í birtingar munu viðskiptavinir ólíklega sjá auglýsinguna. Það sama á við um samfélagsmiðla: frábært efni skilar takmörkuðum árangri ef það birtist bara endrum og eins.
Til þess að fólk muni eftir fyrirtækinu þínu þarftu að minna reglulega á það. Nógu gott efni sem birtist vikulega er betra en fullkomið efni á þriggja mánaða fresti. Eða aldrei, af því að þú ert alltaf að leita að „rétta“ efninu.
Það eru svo allar líkur á því að þú eigir nú þegar fullt af efni sem er nógu gott.
Myndir af morgunmat. Af útsýni úr herbergjum. Eitthvað fyndið og sniðugt sem gerist í dagsins önn og starfsfólkið þitt smellir mynd af. Myndir af gestum eða úr ferðum ef þú ert ferðaskipuleggjandi. Norðurljós. Miðnætursól. Lítið búnt af fíflum eða sóleyjum sem vex við innganginn að móttökunni.
Myndir og myndbönd þurfa ekki að vera tæknilega fullkomin ef þau fanga stemningu, vekja upp tilfinningar eða hjálpa þér að segja söguna af upplifuninni sem gestir tengja við.
Þig vantar ekki endilega efni, þig vantar bara kerfi til að hjálpa þér að birta það reglulega.
Viðhald er ekki það sama og sókn
Okkur hættir til að festast í þeirri hugsun að eina leiðin til að ná árangri á samfélagsmiðlum sé efni sem fer á flug (viral). Oftar en ekki ímyndum við okkur að við þurfum dýrar græjur, meira hugmyndaflug en við eigum aflögu í lok dags og sérfræðing í kvikmyndatöku í teymið.
Þótt það skili líklega betri árangri að vera með starfsmann sem sinnir eingöngu markaðsmálum og samfélagsmiðlum er hægt að gera góða hluti án slíks starfsmanns.
Þú þarft bara að gleyma öllu sem þú hefur heyrt um hvað þú „verður“ að gera og endurskilgreina árangur.
Okkur finnst hjálplegt að brjóta markaðssetningu á samfélagsmiðlum niður í tvær nálganir: Viðhald og sókn.
Báðar hafa sína kosti og galla en þú þarft að velja leiðina sem er raunhæf fyrir þitt fyrirtæki.
Viðhald og virkni
Þú getur viðhaldið samfélagsmiðlunum með því að sýna reglulega virkni, til dæmis með því að birta eina færslu í hverri viku eða mánuði, allt eftir því hvað er raunhæft fyrir þitt fyrirtæki.
Markmiðið með viðhaldsleiðinni er fyrst og fremst að gefa fólki sem ratar inn á samfélagsmiðlana þína til kynna að fyrirtækið sé enn í rekstri. Það grefur undan trausti ef síðasta færsla sem var birt er gömul og úrelt.
Með því að leggja smá hugsun í efnið getur það hjálpað ferðamönnum að átta sig á hvers konar fyrirtæki þú ert að reka, hvernig starfsemin lítur út og hvernig stemning er á staðnum.
Tilgangurinn með þessari leið er ekki endilega að ná til fjölda nýrra fylgjenda, þótt það geti vissulega gerst, heldur að viðhalda sýnileika, kunnugleika og trúverðugleika.
Sókn
Ef þú hefur meiri tíma, fjármuni, þekkingu og/eða mannauð getur þú búið til efni gagngert til að ná til nýrra viðskiptavina.
Við kjósum að kalla þessa leið sókn. Með henni reynir þú að búa til efni sem höfðar til ákveðins markhóps og hefur skýran tilgang, til dæmis að vekja áhuga á tiltekinni upplifun, fá fólk inn á vefsíðuna eða færa það nær því að bóka.
Þetta er efnið sem algrímið eða keyptar auglýsingar senda til ferðalangsins sem er að skrolla yfir sjónvarpinu. Í stað þess að vera til staðar þegar ferðamaðurinn ratar inn á þína miðla býrðu til TikTok-myndbönd, reel, story og flettimyndir og vonar að þær sendi rétta aðila til þín.
Að sníða sér stakk eftir vexti
Ef þér finnst samfélagsmiðlar yfirþyrmandi og ógnvekjandi, eins og svo margir stjórnendur lítilla og meðalstórra ferðaþjónustufyrirtækja upplifa, er sóknarleiðin líklega ekki fyrir þig.
Hún krefst tíma, peninga og, þekkingar á samfélagsmiðlum og vilja til að gera tilraunir. Það er ekki fyrir alla.
En það þýðir ekki að þú getir ekki sinnt viðhaldi og það sé ekki mikilvægt. Ekki gera ekki neitt, eins og auglýsingin kom svo vel til skila um árið.
Loks er gott að muna að viðhald og sókn útiloka ekki hvort annað. Þú getur sinnt viðhaldi meiri hluta ársins en farið í tímabundnar herferðir fyrir mikilvæg bókunartímabil, nýjar vörur eða tilboð.
Aðalatriðið er að velja leið sem hentar þér og þínu fyrirtæki. Ekki það sem þú vildir að þú gætir gert eða það sem allir segja að þú verðir að gera. Heldur það sem er raunhæft í dag.
Skipulag er vinur þinn
Að reka ferðaþjónustufyrirtæki krefst alls kyns skipulags. Það þarf að manna vaktir, passa framboð í bókunarvél og panta inn mat og önnur aðföng í tæka tíð. Ef það væri ekki eitthvað skipulag myndu herbergi tvíbókast og gestir mæta í jöklagöngur og hestaferðir á öllum tímum sólarhringsins.
Svangir af því að það gleymdist að kaupa inn í morgunmatinn.
Þegar kemur að samfélagsmiðlum virðumst við halda að við getum bara „munað að pósta“ þegar andinn kemur yfir okkur. Svo kemur háönnin og allt í einu höfum við ekki birt eina einustu færslu í þrjá mánuði.
Besta leiðin til að tryggja stöðuga viðveru á samfélagsmiðlum er skipulag. Besta leiðin til að skipuleggja sig er að nota kerfi eins og samfélagsmiðlatól Keeps.
Flestir sem vinna við samfélagsmiðla í fullri vinnu taka frá tíma til að framleiða efni.
Á ensku er þetta stundum kallað að „batcha” efni en þá býrðu til margar færslur í einu. Þetta getur verið dagur, nokkrir klukkutímar eða kvöldstund – aðalmálið er að taka frá tíma í dagatalinu sérstaklega til að búa til efni. Þá gleymist það ekki, við fáum fleiri hugmyndir þegar við einbeitum okkur að einu verkefni í einu og vinnan verður markvissari.
Þegar efnið er tilbúið setjum við það í birtingu fram í tímann. Þetta er kallað „scheduling“ á ensku en þá birtir kerfið efnið beint á samfélagsmiðlana þína á þeim degi og tíma sem þú velur.

Samfélagsmiðlatól Keeps tekur skipulagið svo skrefi lengra og hjálpar þér að skrifa texta með myndunum/myndböndunum og velja hashtögg við hæfi. Það eina sem þú þarft að gera er að velja mynd og ákveða hvar og hvenær þú vilt birta hana með textanum sem kerfið hjálpaði þér að skrifa.

Þetta þarf ekki að vera svona flókið
Það er auðvelt að mikla fyrir sér markaðssetningu á samfélagsmiðlum. Það er vissulega að mörgu að huga en allir ættu að geta sinnt reglulegu viðhaldi. Það eina sem þú þarft er skipulag og einhvers konar kerfi til að vinna eftir.
Einn lítill göngutúr um svæðið þitt getur til dæmis skilað myndum og myndböndum í margar ólíkar færslur. Þú getur sýnt útsýnið, umhverfið, gönguleið, áhugaverðan áfangastað eða eitthvað lítið sem fangar stemninguna á staðnum.
Einn göngutúr, heill mánuður af efni!
Samfélagsmiðlatól Keeps er innifalið í Kjarna (Core) grunnáskriftinni. Með Kjarna+ (Core+) getur starfsfólk Keeps séð um viðhald samfélagsmiðla fyrir þig.



Comments