top of page

Um Keeps

Við smíðuðum Keeps til að einfalda þér lífið

Keeps hjálpar hótelum og ferðaþjónustufyrirtækjum að koma sem best fram alls staðar þar sem gestir finna þau á netinu, frá Booking og Expedia til Google og Instagram.

Með Keeps er hægt að uppfæra sölurásir, skipuleggja og birta efni á samfélagsmiðlum og veita samstarfsaðilum og endursöluaðilum einfaldan aðgang að myndum, allt á einum stað.

photomanagement.png
DSC01581.jpg

Sagan okkar

Byggt á áralangri reynslu

Keeps var stofnað árið 2023, en hugmyndin kviknaði út frá reynslu stofnandans, Guðrúnar, af því að halda utan um og dreifa myndefni í ferðaþjónustu. Þá reynslu öðlaðist hún meðal annars í störfum sínum hjá Hertz, Expedia og Guide to Iceland.
 

Árið 2022 tók Guðrún þátt í Startup Supernova hraðlinum í Reykjavík. Þar fékk hugmyndin þann stuðning, tengslanet og meðbyr sem þurfti til að þróa hana áfram og koma Keeps á laggirnar.

 

Í dag býður Keeps upp á sérhæft markaðstól og efnisumsjónarkerfi fyrir ferðaþjónustu sem gerir hótelum kleift að uppfæra myndir og annað efni á mörgum dreifileiðum á örfáum sekúndum. Með því að tengja hótel við helstu bókunarsíður og ferðaskrifstofur hjálpar Keeps þeim að auka sýnileika, styrkja stöðu sína á markaði og styðja við sölu.

Liðið okkar.

Lítið teymi sem skilur ferðaþjónustu

Með reynslu úr hótel- og ferðaþjónustu, efnisstefnu, vöruþróun og þjónustu við viðskiptavini er teymið á bak við Keeps að byggja lausn sem hjálpar ferðaþjónustufyrirtækjum að nýta betur efnið sem þau eiga nú þegar.

Guðrún.png

Guðrún Hildur Ragnarsdóttir

Untitled design - 2026-05-12T112740.936.png

Framkvæmdastjóri/stofnandi 

Katrín.png

Katrín
Magnúsdóttir

Untitled design - 2026-05-12T112740.936.png

Sölustjóri

Untitled design - 2026-05-12T104257.318.png

Lára
Sverrisdóttir

Untitled design - 2026-05-12T112740.936.png

Viðskiptavinaumsjón

Unibrix.png

Unibrix

Untitled design - 2026-05-12T112740.936.png

Hugbúnaðarþróunarteymi

Siggi.png

Sigurður
Guðbrandsson

Untitled design - 2026-05-12T112740.936.png

Tæknistjóri

Treyst af hótelum um allan heim

Storm by Kea Hotels (1).png
Untitled design (96).png
Hotel Katla.png
Skuggi hótel.png
Hotel Borg (1).png
Reykjavík Lights (1).png
Hótel Grímsborgir by Kea Hotel.png
Sigló Hótel (1).png
CTA Form.png
Chat.png

Fáðu kynningu á Keeps frá einum af sérfræðingunum okkar í dag!

Upplifðu hvernig Keeps getur umbreytt efnisstjórnun hótelsins þíns með persónulegri kynningu frá sérfræðingateyminu okkar.

Stutt leiðsögn. Engin skuldbinding nauðsynleg.

bottom of page